Tær snilld
Af tærri snilld heft hefur mig í fjötra
þú tærra snilld úr hópi armani tötra
Af tærri snilld var þín fjárfesta blaðra
Af tærri snilld komst þú ábyrgð á aðra
Af tærri snilld tókst þú aur minn í hönd
af tærri snilld með honum brenndir þú lönd
af tærri snilld grófst þú gróðanum braut
af tærri snilld þar um þjóð mín nú hnaut
af tærri snilld tættir svörð okkar hinna
af tærri snilld eyddir framtíð barnanna minna
af tærri snilld vil ég á það minna
af tærri snilld mun nú fólk saman vinna
Af tærri snilld grípa gumar til vopna
af tærri snilld munu kviðinn þinn opna
Af tærri snilld taka skalt þú til fóta
af tærri snilld mun þig lýðurinn brjóta
Af tærri snilld skalt þú friðlaus finnast
Af tærri snilld skaltu ætíð minnast
Af tærri snilld gerðist landráða maður
Af tærri snilld skal ég jarða þig glaður
Cast: Kriss Flame


You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

