Við förum í dag úr ferðabíl yfir í varðeldinn. Það er viðeigandi því hvoru tveggja getur haldist í hendur. að vísu kanski ekki á íslandi þar sem hann er ekki algengur. Fyrst og fremst vegna trjá skorts og eins vegna þess að he´r er svo bjart þegar hægt er að vera úti við varðeld. Mér líkar við varðeldamenninguna sem ég kynntist í USA enda gott að sitja þar við varðeldinn á svölum kand it kvöldum í fylkis eða þjóðgörðum. Þar sátu menn í hóp og spjölluðu og grilluðu. Einn hluti þess sem ég sakna frá ferðalögum mínum er það að sitja á ströndu við varðeld og stara áhyggjulaus inn í eldinn. Það hreinsar hugann vel. Einskonar andleg íhugn má segja. Þessi sjálfsmynd var tekin í Baja California in Mexico á strönd sem heitir Ligui beach. Þessi strönd mun senn verða eyðilögð af framkvæmdaraðilum sem þegar hafa hrakið allt í burtu og útilokað fiskimenn frá því að komast til sjávar..
Smá ferðalag um Snæfellsnes varð til þess að ég náði þessari mynd á Grundarfirði á síðasta degi mánaðarins þar sem ég náði mynd af firðinum bænum og af Kirkjufelli.