1001 Viðfangsefni ljósmynda # 20 Ljósmyndun úr lofti
Ég skal játa það að ég veit ekki alveg hvar mörkin liggja í ljósmyndun úr lofti . Er nóg að standa upp á stól og beina myndavélinni niður eða hvað?
Þessi mynd var alla vegana ekki tekin í frjálsu flugi um himingeiminn, né var hún tekin úr flugvél. Samt sem áður var ég hátt uppi og horfði langt niður þannig að þetta var nógu líkt því að vera á flugi.
Ég veit aðRax hinn mikli snillingur notar flugvél fyrir sínar myndir úr lofti en þangað til ég fæ flugmanns skírteini og finn mér aura til þess að kaupa egin vél þá verður það að mynda fram af hengiflugi að duga.
Auðvitað skelli ég mér annað slagið í flugvél til að mynda jörðina en það er ekkert sem ég hef gefið mig út fyrir að gera sem aðal viðfangsefni eins og Mats, sem er í raun skrítið því ein af fyrstu auglýsingunum sem ég gerði ný skriðinn út úr skóla var einmitt loftmynd fyrir dagatal Samskipa.
Þessi mynd er hluti af afrakstri 6 daga ferð um Snæfellsnes í sumar
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
- English
-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

