1001 Viðfangsefni ljósmynda # 21 Sólarupprás (í Honduras)

 

Sólin og sólar upprásin er sjálfsagt ekki efst í huga íbúa Honduras nú um þessar mundir. M

ér varð hugsað til Honduras og hversu erfið og brotthætt þessi veröld er eftir að hafa lesið um ritskoðun sem nú á sér stað í Honduras.

 

Honduras er fjölbreitt veröld þar sem þú finnur fallegar sandstrendur og kóral rif að kafa við mitt innan um sárustu fátækt. Þessi ríkuleiki landsins ætti að minna okkur á ríkuleika mannsskeppnunar og litríka flóruna. Það ætti líka að minna okkur á að málfrelsi er ekki sjálfsagður hlutur talinn allstaðar. Jafnvel ekki á íslandi. Gegn ritskoðun ættu menn ætíð að berjast því án málfrelsis verður heimurinn einsleitur. Við höfum jafnan rétt til að tjá okkur hvort sem er í orðum eða myndum