1001 Viðfangsefni ljósmynda # 22 steinvölur

 

Brimsorfnir steinar og stein völur hafa verið viðfangsefni listrænna  ljósmyndara lengi.  Sérstaklega þeirra sem sérhæfa sig í svart hvítri ljósmyndun með stórformats myndavélar. Form og línur ásamt ljósi og skugga má skoða endalaust.

Það er því ekkert einfalt mál að ætla sér að gera svona myndir á stafræna myndavél. Það er ekkert of erfitt að ná fram viðunandi árangri á skjánum. En þegar kemur að útprentun vandast yfirleitt málið. Við erum jú ekki lengur með silfur gelatín pappír og sú áferð sem hann gefur er töluvert frá stafrænni prentun. Nema ef menn finna sér sérstakan pappír og liti. Það er töluverður lærdómur fólgin í því að skoða mismunandi prentara, pappír og blek fyrir stafræna útprentun. Það er ekki bara ýtt á takka og út kemur gæða mynd.  ég vildi gjarnan að það væri til einföld og góð lausn á því að stækka stafræanar ljósmyndir yfir á silfurgelatín pappír. Þá væri gaman að lifa. ég sakna að mörgu leyti þeirra gömlu góðu daga þegar maður var einn með sjálfum sér og myndum sínum inni í rauða ljósi myrkraherbergisins. Þar mátti veröldin fyrir utan eiga sig svo klukkustundum eða dögum skipti.Uns maður snéri aftur með galdraverkið i höndunum.