1001 Viðfangsefni ljósmynda # 26 Slys
Það er engin stafræn galdramennska að baki þessari ljósmynd. í raun er sorgleg saga á bak við upprunalegu myndina enda raunverulegt slys. Samt sem áður..
get ég ekki gert annað en brosa út í annað þegar ég sé þessa mynd. ég fæ á tilfinninguna bókarkápu meira en nokkuð annað. Eitthvað í líkindum við Raymond Chandler krimma. Því miður eru slys eitthvað sem gerist á hverjum degi og það er möguleiki að gera úr þeim myndefni á snyrtilegan máta. Þetta er kanski ekki í sömu línu eða sama anda og fréttaljósmyndun eða photojournalism sem segir sögur. ég ákvað að fara þessa leið með myndina í staðinn og vinna hana töluvert. Þannig segir hún þér sögu en kanski ekki endilega þá raunverulegu sögu sem er að baki myndarinnar. Fyrir mér er þetta sagan af Mr. Big.
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
English-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

