1001 Viðfangsefni Ljósmynda # 42 Fossar
ég ætlaði að geyma þetta myndefni þar til síðar þar sem það er svo algengt en þá skaust þetta tilefni upp fyrir framan linsuna í síðustu viku og mér tókst loks að fanga viðfangsefnið á þann máta sem mér líkar.
Þrátt fyrir að það hljómi auðvelt að ná ljósmynd af fossum þetta fallegum þá hef ég hingað til aldrei verið ánægður með þær myndir sem ég hef tekið af Hraunfossum og fannst þær ekki bæta við neinu í flóru þeirra ljósmynda sem þegar höfðu verið teknar. Þetta er sjálfsagt einn af mest mynduðu fossum landsins og því erfitt að ná á þá nýju sjónarhorni.
Exif fyrir þessa mynd þjónar í reynd litlum tilgangi því þetta er HDR útgáfa. Þrjár myndir keyrðar út úr Lightroom2 og svo sett samana í Photoshop
Camera: Canon EOS-1Ds MKll
Lens: Canon 24mm -70mm f 2.8 á 24mm
exposure: 0,6 sec at f.22
Iso 50
Og svo það sem exif getur ekki sagt þér en ég geri hér með Lee filters Circular Polarizing filter ásamt Lee graduate
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
- English
-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

