1001 Viðfangsefni ljósmynda #5 pungar

ég veit að þetta er keanski ekki fínasta orðið sem hægt er að finna í kaflanum um matarljósmyndunen enska orðið (bollocks) hefur mér ætíð þótt frekar fyndið ef það er notað á réttan hátt og í góðu samhengi.

Kanski var það undir áhrifum þess sem Íslendinga langar að gera við Hr  Brown þessa stundina sem mér flaug þessi mynd í hug. Hryðjuverkalögin sem Bretland beitti gegn vinveittri þjóð eru hneysa. Að halda íslandi á listanum áfram er enn meiri hneisa og alþjóða samfélaginu til skammar að láta það viðgangast. Þannig hefði ég kanski att að láta fyrirsögnina á þessu vera Hnetur hr Brown. ( MR. Browns Bollocks). Kanski geri ég stuttermabol með þessari mynd í framtíðinni. Það væri í stíl við fleiri slíkar sem fá má á Íslandi um þessar mundir.  í reynd ætlaði ég að birta mynd af slátrara (í þessari kjöt seríu minni) þegar ég mundi eftir þessari. Til þess að skilja fullkomnlega skilgreininguna þá leitaði ég orðið uppi í orðabók en fann á t wikipedia að notkunin tengist langt aftur í tíman.