1001 Viðfangsefni ljósmynda # 58 Markaðir
Ég elska markaði. Þá er ég ekki að tala um þessa venjulegu stórmarkaði sem tröllríða öllum vestrænum þjóðfélögum.
Markaðir komu upp í umræðunni nú um daginn þegar blaðaljósmyndarinn Spencer Platt heimsótti Ísland og hann spurði mig út í hvað ég hefði verið að mynda á ferðalagi mínu. Hið skemmtilega við myndirnar mínar úr ferðinni er að í USA myndunum (Ég kalla þær USA my way) er nánast ekkert fólk meðan myndirnar frá mið Ameríku eru fullar af fólki. Sérstaklega þessar frá mörkuðunum.
Markaðir í mið Ameríku eru litríkir, hávaðasamir og mann margir. ég varð ekki var við mikla andstöðu fólks þar við því að ég tæki af því myndir, nema ef væri fyrir eina eldri konu sem neitaði mér um myndir og sló mig léttt á höfuðið og hló.
Ég geri ráð fyrir því að aðal ástæðan fyrir árangrinum er sú aðferð sem ég nota við að taka þessar myndir. Myndavélin fer nánast aldrei upp að andlitinu og er nánast falin. Samt ekki
Það eru til tvær leiðir til að taka streetljósmyndir. Falda leiðin þar sem þú lætur fara eins lítið fyrir þér og hægt er og reynir að falla inn í umhverfið. Hin aðferðin kalla ég Kúreka aðferðina þar sem þú lætur virkilega á þér bera svo það fari ekkert á milli mála hver þú ert og hvað þú ert að gera. Þannig hafa þeir sem ekki skjót sér undan þegar gefið samþykki sitt fyrir því að þú myndir.
Hvora leiðina sem þú velur þá krefjast báðar mikkillar æfingar og ekki þýðir nokkurn skapaðan hlut að hugsa um linsu lengri en 70mm.
Uppáhaldið mitt er á bilinu 24mm - 35 mm.
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
English-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

