1001 viðfangsefni ljósmynda # 62 Hryllings myndir
Það er hvorki svo að mig hafi dreymt illa né að ég líti fram á daginn með hryllingi. Samt kom þessi mynd í hugann í dag. Kanski út af ben nagandi hvolpinum sem liggur hér við hlið mér og vekur mig á ókristilegum tíma.
Kanski er það bara vegna þeirra tilrauna sem ég hef verið að gera með Lightroom og þessa stefnu í framköllun sem er að verða eitthvað sem mér líkar. Kannski óttast ég bara að menn líti á þennan myndvinnslu stíl með hryllingi. Þetta er blanda af málað með ljósi, gamaldags olíu litum á svarthvíta ljósmynd og photoshop fylleríi.
Hvað um þa sama er mér. ég skemmti mér konunglega við þessar tilraunir. Og þó mér er ekki alveg sama. án áhorfanda er ljósmynd lítils virði. Ef þér líkar þetta ekki endilega láttu þá skoðun þina í ljósi. ég bít ekkert af þér höfuðið við það. Hvort sem þér líkar þetta eða ekki máttu slá inn athugasemd.
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
- English
-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

