1001 Viðfangsefni ljósmyndunar # 57 Handrið
Handrið á að vera þarna fyrir þig til halds og trausts. í þessu tilviki var nú samt ekki svo.
Handriðið gaf mér engan stuðning í ákvörðunartöku gagnvart því hvaða mynd ég ætti að nota. Ég hafði þegar ákveðið að nota þessa mynd en hvaða útgáfu hennar var ég ekki viss um. Kanski vegna þess að ég er að færa mig yfir í nýjar útgáfur í framköllun og smátt og smátt með hjálp Lightroom og Photoshop að feta nýjar slóðir í framköllun. Kanski er ég hræddur um að mér líki þetta ekki. Eða til að um orða þetta. ég er kanski hræddur um að ykkur líki þetta ekki.
Þessi nýji stíll í stafrænni framköllun verður til við að blanda saman inn og útflutningi mynda úr Lightroom og vinna á milli í Photoshop. Kanski þegar ég hef straumlínulagað vinnuflæðið. Þá kanski hef ég mitt handrið að styðja mig við eða haldreipi að hanga í.
Hvað finnst þér. segðu skoðun þína í athugasemdunum.
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
- English
-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

