Ljósmyndari verður að vera réttur maður á réttum stað á réttum tíma
Félagi minn einn sagði eitt sinn við mig að ljósmyndun snérist um að vera réttur maður á réttum stað á réttum tíma og gilti það jafnt um fréttaljósmyndun sem landslags ljósmyndun. Ég er honum alveg sammála þó svo málið sé ekki alveg svona einfalt. Þér getur brugðist bogalistin þrátt fyrir að vera á réttum stað á réttum tíma ef þú ert ekki viðbúinn eins og skátarnir. Allt byggist þetta á því að hafa rétta þekkingar grunninn og góðri æfingu þannig að þú getir brugðist skjótt við í öllum aðstæðum. Nú svo má smá heppni fylgja með. í síðustu viku kom ég seinnipart dags inn í Landmannalaugar. Þreyttur eftir 5 daga gönguferð um Langasjó ákvað ég að fá mér smá lúr fram að kvöldmat. Ég hafði hvort eð er tekið nokkrar landslagsljósmyndir á Landmannaleið og ákvað að bíða aðeins eftir kvöldbirtunni fyrir frekari myndatöku. Til að gera langa sögu stutta þá svaf ég yfir mig af þreytu og vaknaði ekki fyrr en það var bankað á dyrnar á litla húsbílnum Hér voru landverðir komnir til þess að rukka fyrir gistingu. Enn í svefn rofanum varð mér litið á landverðina, þá til himins og svo á konu mína sem ég kallaði á að hún yrði að sjá um málið. Því næst skutlaðist ég í bærkur, hoppaði ég út úr bílnum reif fram myndavélina og þrífótinn stillti upp og smellti af 6 skotum. það var allt og sumt. Allur tíminn sem ég fékk til að gera þessa mynd 6 rammar teknir á meðaltalinu f 1.3 sec pr ramma . Það gerir 7.8 sec. Reyndu að telja upp að 8 og sjáðu hvaða tíma við erum að tala um. Þetta er sá tími sem fór í að stilla upp reikna út og vinna myndina sem ég sá í huganum. ég eyddi töluvert meiri tíma þegar heim var komðið í að vinna myndina, enda brakketað og því notaði ég málað með ljósi aðferðina mína við myndvinnsluna ásamt HDR íPhotoshop. Án smá heppni, góðrar þekkingar og æfingu hefði myndin tínst inn í svefnrofann þrátt fyrir að ég var réttur maður á réttum stað á réttum tíma.
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
English-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

