Paparazzi eða pappa rass?

Bjork Gudmundsdottir Singer songwriter

Bara eitt orð Gleymdu því.

Allt í lgai ég skal alveg viðurkenna það mér er ílla við þá og kalla þá pappa rassa. í mínum huga eru þeir ekki ljósmyndarar og ég nota ekki það orð í tengslum við þessa menn. Fyrir mér eru þeir veiðimenn, gluggagæjar sem skipt hafa út rifli eða kíki fyrir myndavél. Það sem þeir eru að gera tengist ekkert ljósmyndun né því að búa til góðar myndir. Þeirra verk snúast um að þéna peninga og það helst á óförum annarra. Þeir eru hræ ætur. og hver hefur metnað í slíkt.

Þú geturr gleymt því að þú verðir eitthvað annað en papparass ef þú ferð einu sinni út á þá braut. Stóru stjörnurnar munu ekki hugsa um þig sem næsta ljósmyndara fyrir nýjustu herferðina þeirra. Gleymdu því að fá vinnu við kvikmyndir og nálægt kvikmyndaverunum. Næsta veggspjald frá bíómynd verður ekki þitt  Þá munu stjörnurnar einnig neita að mæta í myndatöku þó svo blað eða tímarit hafi ráðið þig til verksins. Það eru nefnilega stóru og þekktu nöfnin sem oftast eru á forsíðum blaða og þau þekkja nafn þitt og hjá þeim hefur þú misst allt traust. Það er líklegra að þú fáir hnefan í andlitið en andlit þeirra fyrir framan myndavélina komir þú nálægt þeim. Ef þú heldur að Björk hefði gefið leyfi sitt fyrir þessari myndatöku ef ég væri papparass og hefði selt myndir af henni og fjöskyldu að slappa af eða skemmta sér á íslandi. O nei.

Daginn áður en ég skrifaði þessa færslu var ég á bar í litlum strandbæ í Belize. Inn gekk frægur hafnarbolta leikmaður ásamt félögum sínum og þar sem það var Karókí kvöld þá tóku þeir til við að syngja ásamt félaga mínum. Ég greip því myndavélina og smellti af. Og þar við situr. Þessar myndir eru til í minningarbókinni minni en þær fara ekkert lengra en það.

.Traust er það sem viðskipti til langframa þurfa að byggjast á og ekkert er mikilvægara í ljósmynd heldur en að sá sem þú myndar treysti því að þú sért að gera þitt besta. Þetta er því spurning um orðspor. Hvort viltuu öðlast nafn fyrir að taka góða mynda af ANglica Jolie eða öðlast frægð fyrir að fá hnefa hennar í andlitið vegna ágengni.

Mundu bara að vegur papparassans er vegur einsemdar og fyrirlitningar. Vinir þínir geta ekki treyst þér. Því þeir vita ekki hvort þú selur myndirnar af þeim í slúðurblað.

Því mæli ég með að menn velji heilbrigði og forðist papparassisma.