Gusugangur í Baja California

 

Hef undanfarið verið að vinna í myndum sem ég tók í  Baja California af Pelikönum í fæðisleit. Fram að því hafði ég nú ekki talið mig mikinn áhugamann um fuglaljósmyndun né ástundað slíkt. Kom mér einhvern vegin aldrei til þess. Kanski spilaði veðrið þar inn í að einhverju leyti.Kanski var ég bara latur eða kanski ég hafi bara verið að hugsa um aðra hluti. Alla vegana þá veiktist ég lítilega af fuglaskoðunar og ljósmynda áráttunni þarna við ströndina á Ligui beach, í Baja California þegar Pelikanarnir flugu inn einn morguninn og dvöldu í flóanum í svona eins og viku tíma áður en þeir hurfu jafn snöggt og þeir komu. Ég vaknaði að venju árla morguns og hélt út að mynda á meðan sól reis á himni, síðan beið ég (og vann myndir) þar til sól fór að setjast aftur og hélt þá aftur út að mynda. Það var á þessum tíma sem þeir sýndu flug kunstir sínar hvað best og mest. Ég skemmti mér konunglega við að mynda þá og vildi gjarnan fara aftur á þetta svæði og mynda meira. Það má sjá fleiri  fugla ljósmyndir hér

Birta nýja athugasemd

  • Web page addresses and e-mail addresses turn into links automatically.
  • Leyfilegar HTML skipanir :<a> <em> <strong> <cite> <code> <ul> <ol> <li> <dl> <dt> <dd>
  • Lines and paragraphs break automatically.

More information about formatting options

CAPTCHA
This question is for testing whether you are a human visitor and to prevent automated spam submissions.