USA my way - Fyrirlestur 12. Nóvember kl 12
USA MY WAY - Hvar er fólkið ?
Fyrirlestur og skyggnu sýning
Þjóðminjasafn Íslands
Fimmtudagurinn 12 nóvember Kl 12:00
Fyrirlesari: Kristján Logason Ljósmyndari
Fyrirlesturinn er sá fyrsti í nýrri röð hádegisfyrirlestra í samvinnu Ljósmyndarafélags Íslands og Þjóðminjasafns Íslands
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Um USA My Way segir Kristján:
Árið 2006 lagði ég ásamt konu og hundi upp í tveggja ára ferð í húsbíl sem flutti okkur 60.000 kílómetra um 10 lönd í Norður og mið Ameríku.
Í ferðinni leitaðist ég við að endurnýja og endur skilgreina sjálfan sig sem ljósmyndara. Flýja tæknina sem fylgt hafði breytingum stafrænnar tækni og snúa baki við barbabrellum tölvuforrita og margbreytileika stafrænnar veraldar sem hafði haft mikil áhrif á þankagang minn og verið megin þema í sýningarhaldi og vinnu minni allt frá útskrift úr Ljósmyndaskóla í Svíþjóð.
Hvað er ljósmynd, Hvað skilgreinir ljósmynd og hvar liggja mörk ljósmyndar og myndverks með blandaðri tækni. Hvenær fæðist ljósmynd og hvenær hættir ljósmynd að verða ljósmynd eru verkefni sem hafa verið mér hugleikin allt frá því ég útskrifaðist úr skóla með stafrænar ljósmyndir. Eftir miklar pælingar og í raun enga niðurstöðu ákvað ég að leggja verkefnið í salt í bili og snúa mér að grunninum frá hinni hliðinni, skoða hvað er ljósmyndari og hvað skapar gleðina í ljósmyndun. Er hið magíska augnablik myrkraherbergis horfið með stafrænni tækni. Er einfaldleikinn eins einfaldur og hann virðist.
Í stað þess að vinna með landslag og uppstilltar auglýsingamyndir ákvað ég að snúa mér meira að fólks ljósmyndun en áður og fást við fólkið í sínu náttúrlega umhverfi. Þó voru þau formerki á ferðinni að ekki skildi festa sig í neinu einu heldur horfa á heiminn eins og áhugaljósmyndarinn. Allt skildi efni í ljósmynd.
Usa my way hvar er fólkið er leit mín að fólkinu til að mynda um leið og það er leit mín að gleðinni í ljósmyndun og leit mín að ljósmyndaranum í sjálfum mér og grunni hans.
En hvar er fólki?
- kristjan's blog
- Login or register to post comments
-

You can search in my extensive archive of Travel photography, Stock Potography and fine art Photography.

